Hlutverk embættis landlæknis er að stuðla að heilbrigði landsmanna, meðal annars með góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum.
Kíghósti
Kíghósti er alvarleg öndunarfærasýking hjá börnum, einkum á fyrstu mánuðum ævinnar. Hjá unglingum og fullorðnum þekkist sjúkdómurinn af langvarandi og þrálátum hósta. Besta forvörnin er bólusetning.
Starfsleyfi og vottorð
Embætti landlæknis veitir heilbrigðisstarfsfólki starfsleyfi og gefur út vottorð sem staðfesta gild starfsleyfi.
Mælaborð
Ýmis tölfræði um lýðheilsu og starfsemi heilbrigðisþjónustu er aðgengileg í gagnvirkum mælaborðum. Undirstaða mælaborðanna eru gögn í heilbrigðisskrám og könnunum embættisins.
Ráðleggingar um mataræði
Holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir heilsu og vellíðan. Í ráðleggingum um mataræði er lögð áhersla á að auka neyslu grænmetis, ávaxta, fisks og heilkorna vara en minnka neyslu á sykri, mettaðri fitu, salti og mikið unnum vörum.
Fréttir og tilkynningar
Sýkingar sem tengjast heilbrigðisþjónustu og sýklalyfjanotkun
Árlega fá 4,3 milljónir sjúklinga á sjúkrahúsum innan ESB/EES-svæðis að minnsta kosti eina sýkingu sem tengist heilbrigðisþjónustu, oft kallað spítalasýking.
Kíghóstafaraldur á Íslandi og í Evrópu
Í byrjun apríl síðastliðinn greindist fyrsta tilfelli kíghósta hérlendis frá árinu 2019. Síðan þá hafa 35 einstaklingar greinst með staðfestan kíghósta (PCR-próf). Til viðbótar hafa 20 einstaklingar fengið klíníska greiningu (greining læknis án rannsóknar).